

VIKSUND 340 St. Cruz - FRÁBÆR KOSTUR Í ALLA STAÐI
Viksund 340
St. Cruz
Hægt er að velja milli hældrifs og venjulegs skrúfubúnaðar. Jafnframt er gert ráð fyrir því að hægt sé að velja milli þess að hafa eina vél eða tvær. Þrátt fyrir stærð bátsins fæst þó nægur ganghraði með einni vél.
Smelltu hér til að skoða sérstaka kynningu á 340 St. Cruz.
Við hvetjum til þess að pantanir berist okkur í tíma svo hægt sé að tryggja afhendingu sem fyrst næsta sumar. Hafðu samband til að fá nánari upplýsingar.
Lengd: 10,35 metrar
Breidd: 3,50 metrar
Vélar: 310 - 520 hestöfl (1 - 2 vélar)
Hraði: 18 - 33 hnútar (a.m.k.)
Þyngd: 5.300 kg.
Olíutankur: 660 lítrar (hægt að stækka)
Vatnstankur: 300 lítrar
340 St. Cruz er frábær bátur til í alla staði. Báturinn er búinn tveim stórum og rúmgóðum káetum og klósetti með sér sturtuklefa, sem er einsdæmi í bátum af þessari stærð. Jafnframt er í bátnum rúmgóð setustofa og eldhús í stýrishúsi ásamt því að dekkplássið að aftan getur verið upphitað og nýtist ótrúlega vel, ekki síst þegar því hefur verið lokað með sérsaumuðu og vönduðu segli sem fylgir. Frágangur að innan er eins og annað frá Viksund - fyrsta flokks.




